Sérstaklega frá mér einnig frá genginu hér í Nerima en við eyddum mestöllum deginum í dag að þrífa húsið sem útskýrir fatnaðinn á myndinni. Takk fyrir hið gamla og gerum góða hluti á nýju ári.
Ákvað að framlengja keppnina hér að neðan. Því er fresturinn til áramóta og ég vonast til að sjá sem flestar tillögur. Bara minnast á eitt, djóktitlar eru kúl en þeir verða að geta lifað í meira en nokkra daga þar sem að þetta blogg verður starfrækt í minnsta kosti hálft ár. Bíð spenntur eftir fleiri innsendingum.
Fór í jóla-karaoke í gær með vini mínum þar sem við sungum bara jólalög. Ég er ekki frá því að þetta er ein besta leiðin til að komast í eitthvað sem líkist jólaskapi. Eins og sum ykkar vita að þá halda Japanir voða takmarkað upp á jólin, aðallega er þetta verslunarhátíð þar sem að pör gefa hvor öðru gjafir. Svo borðar fólk kjúkling á aðfangadag. Magnið af kjúkling sem fólk borðar er svo mikið að KFC biður fólk um að panta jólakjúllann í byrjun nóvember.
Kláraði seinasta stóra verkefni skólaársins um helgina en þá var Art Path sem er kynningarhátíð á verkum nemenda skólans. Ég setti saman panel-sýningu þar sem að ég lýsti dubstep tónlist, rakti sögu hennar, fjallaði um dubstep á netinu og fjallaði stuttlega um dubstep í Japan. Svo setti ég saman fínt slideshow með myndum af dubstep viðburðum um allan heim og spilaði Dubstep Warz útvarpsþáttinn sem var útvarpað af BBC Radio One í byrjun árs 2006. Dubstep dubstep dubstep. Gekk snurðulaust fyrir sig og fékk nóg af spurningum um verkefnið sem var mjög gaman.
Hitti á hann Keisuke í síðustu viku og við ræddum um sameiginlegt verkefni sem við munum standa að á næsta vori. Hann er gamall kunningi og listamaður sem býr í Kyoto og við erum núna að setja upp sýningu sem blandar saman innsetningu eftir hann og ljósmyndum eftir mig. Þetta er allt á undirbúningsstigi en þetta verður víst haldið í lok mars í borginni Chiryu sem er rétt hjá Nagoya.
Núna er ég kominn í frí til 7. jan og ég ætla að taka því sem mest rólega. Jólaáform eru í minna lagi, mæti í jólaboð í sendiráðinu og fer í nokkur matarboð milli jóla og nýárs. Eftir áramót mun ég svo fara til Mito þar sem foreldrar Saho og Hokushin búa. Fæ að taka þátt í nýársfögnuðinum með þeim en í Japan stendur nýársfögnuður út fyrstu vikuna í janúar og þá safnast fjölskyldur saman og halda upp á nýja árið með góðum mat og afslöppun.
Að lokum vildi ég sýna ykkur flyerana sem ég var að útbúa fyrir diskó/boogie kvöldið Boogie in Motion sem ég og nokkrir vinir erum að halda 11. janúar. Það er bara 1000 kall inn (mátt fara út og koma aftur) og góð músík frá 22-morguns. Vonast til að sjá ykkur öll, Tokyo fólk!