02.09.2008 >> Ugluferð

Lífið er búið að vera ansi rólegt síðastliðnar vikur. Baldur kom með fríðu föruneyti Íslendinga (Tommi, Bogi, Palli, Dagur, Bogga, Hersteinn, Kristján, Helga og Bjarni) til Tókíó en þau voru í tvær vikur en fóru af stað heim í morgun. Náðum að hittast og kíkja á ýmsa staði en ánægðastur er ég með djammið þar sem við náðum að fara á diskókvöld hjá Kento vini mínum, á after-hours barinn Chandelier Bar og svo síðast að borða Ichiran núðlur. Perfekto.

Ljósmyndasýningin hans Shibano sem ég var að DJa á var núna um seinustu helgi og gekk allt mjög vel. Var að spila einn og hálfan tíma á föstudeginum og þrjá tíma á laugardeginum. Hitti alls kyns skemmtilegt nýtt fólk, þar á meðal fólk frá tímaritinu Paper Sky en næsta tölublað verður víst með Íslands-þema. Þau tóku mynd af mér fyrir blaðið meðan ég var að DJa og sögðust ætla að skrifa litla klausu um mig og smella í blaðið einhvers staðar. Mjög töff.

Búinn að nýta tímann ágætlega og náði að klára rímixið fyrir Andy vin minn. Það geturðu fundið hér (beint dánlód). Originalinn geturðu heyrt á mæspeisinu hans. Annað sem ég náði að klára var dreifimiðinn fyrir sýninguna um höfund Nonna bókanna. Núna þarf ég bara að drulla mér að endurhanna mæspeisið mitt og setja upp nýja músík, uppfæra Ég elska Tokyo, undirbúa íslenskt tónlistarkvöld, klára Boogie Mixx II og að sortera ljósmyndasafnið.

Ég, Saho, Aiko og Hokushin kíktum til Atami í Shizuoka-héraði í stutta ferð núna síðustu helgi strax eftir DJ spilamennskuna á ljósmyndasýningunni. Gistum á hóteli við ströndina og fengum fínasta japanska mat með öllu tilheyrandi uppá herbergi. Svo var drukkið japanskt áfengi og talað á japönsku. Eftir það var það japanskt bað (eða onsen) og svo japanskur svefn (svona).

Daginn eftir kíktum við niður á strönd og skoðuðum okkur um í bænum. Gaman að sjá sjóinn aftur svona til hátíðarbrigða og sleikja sólina aðeins en voru búnir að vera hitabeltisstormar með þrumum og eldingum næstum upp á dag síðustu vikuna áður en við héldum út á land.

Ströndin í Atami.

Svona leit útsýnið út séð frá ströndinni. Minnti mig á eitthvað batterí á Mallorca eða Spáni. Þarna var fólk að æfa strandblak og að æfa sig í hafnarbolta, bara ekki á þessari mynd.

Á leiðinni uppá stöð römbuðum við upp á þessi ósmekklegheit, kaffihúsið Kuronbo. Yfirfært á Ísland væri þetta mjög svipað og að sjá Kaffi Niggari á Vík í Mýrdal.

Aðaltakmarkið með ferðinni var að kíkja í fuglagarðinn í Kakegawa sem var ekki langt frá Atami. Ekki mín hugmynd en reyndist vera ágætis hugmynd eftir allt saman. Röltum um garðinn og sáum alls kyns fugla eins og uglur, pelíkana, flamingóa og fleira. Átum soba núðlur og létum taka mynd af okkur með mörgæs. Ágætis eftirmiðdagur.

Kíkti í skólann í gær að skrifa undir fyrir styrkinn sem ég er á og rakst á þetta á lóðinni. Þetta eru nemendur að gera skúlptúra úr frauði eða einhverjum andskotanum. Tilgangurinn er Geisai 2008 sem er árleg uppskeruhátíð nemenda skólans.

Þessi sumo-kappi var ansi flottur.

Síðast en ekki síst er hér mynd af svona suður-amerískum panflautu-spilandi götulistamönnum sem ég rakst á í Ueno almenningsgarðinum á leið frá skólalóðinni. Svo fínir í Lakers litunum. Ég er farinn að kaupa plötur.
Allra seinast vill ég biðja um uppástungur að samkeppni á blogginu. Helst eitthvað sem er tiltölulega létt fyrir lesendur að framkvæma. Ætla að kaupa inn verðlaunin í dag.
__ELDRI FÆRSLUR__
|
[ Add Comment ]
Arnaldur at 10:01 02.09.2008
ég vil fyrst benda á Svarta Kaffi á Laugarveginum, sem gjarnan vekur svipaða eftirtekt meðal ferðamanna, sem heimamanna þegar þeir átta sig á "blackface" pikkólóinum við tröppurnar.
Næst vil ég segja að mér finnst það mega-blellað að þú hafir spilað hjá Shibano og vil sjá þetta Paper Sky.
Að lokum krefst ég þess að þú chase-ir þessa skúlptúra og sýnir myndir af þeim fullkláruðum. Djövulli þarftu að fara að draga fram Warhammer-settið ef þú ætlar að fara að keppa við þessa gaura.
björn ingi at 13:47 02.09.2008
Hvar er myndin af ykkur með mörgæsunum ??
Steinn Linnet at 13:52 02.09.2008
Hvernig væri að halda mörgæsakeppni?
gummi at 15:24 02.09.2008
Mörgæsir endalausar mörgæsir..
Arnaldur at 10:46 03.09.2008
Ég fíla keppnisskapið í þér Steinn. Fyrst þjóðhöfðingjar og nú mörgæsir.
Árni at 13:21 03.09.2008
Steinn> Fersk hugmynd en hvernig keppir maður í mörgæsakeppni? Gemmér reglur og framkvæmd og ég skal bomba þetta.
Og fyrir þá sem vilja er myndin af okkur með mörgæsinni (því miður fengum við bara eina) hér -> notendur.centrum.is/~vka/japanpics/vidmedpenguini.jpg
gummi at 15:26 03.09.2008
Ahh búbú mörgæs
Sveinbjörn Pálsson at 20:11 03.09.2008
Tek undir þetta með svarta kaffi. Vil einnig benda á Gráa köttinn. Skömm!
björn kóngur at 22:08 03.09.2008
Ég væri kátari á svipin en þú Árni ef það væri verið að taka mynd af mér með mörgæs.
Spurning um að keppa í því.
Hver er hressastur á mynd með mörgæs ?
Arnaldur at 09:38 04.09.2008
Hvað með keppni um hver getur gert flottasta frauðplasts/anime-skúlptúrinn?
KRiZ at 12:31 04.09.2008
Ég mæli með því að halda photoshopkeppni. Þú skaffar 1-3 myndir og svo læturðu lesendur leika sér í photoshop með þær og koma með súrustu myndina. Svo geturðu auðvitað haft þema. Ég gerði þetta eitt skipti á blogginu mínu og það var mjög skemmtilegt.
Björn kóngur at 12:33 04.09.2008
Eða skúlptúr freestyle !
Árni at 12:46 04.09.2008
Verst að það kunna ekki allir á Photoshop. Þarf að vera eitthvað sem flestir geta tekið þátt í.
Skúlptúr er ekki slæm hugmynd heldur. Hvað með að hafa þetta bara "listaverkakeppni" þar sem að má senda inn allt mögulegt. Lágmarkið að senda inn mynd af verkinu (myndin sjálf getur verið listaverkið), titil, ár og listamannsnafn ef eitthvað er. Hvernig líst fólki á það?
björn kóngur at 20:33 04.09.2008
hvað með danskeppni ?
Árni at 04:40 05.09.2008
Og allir uploada dansinum sínum á YouTube?
Add Comment
The password to post a comment is blell.